Ég er rútínuhundur. Mér líður best þegar allir dagar byrja nokkurn veginn eins. Sérstaklega þegar ég er að vinna í bók.
Ég var með skrifstofuaðstöðu víða á meðan ég vann að skáldsögunni Ókunnugu fólki, enda tók vinnan við hana nokkur ár. Einn af þeim stöðum var ReykjavíkurAkademían sem þá var staðsett í Bríetartúni. Á hverjum morgni gekk ég niður Barónstíginn endilangan súpandi á barmafullum fanti af earl grey með sítrónu og hunangi, að hugsa um hvar ég ætti að byrja þegar ég settist við skrifborðið. Vissa morgna tókst mér að stilla göngutúrinn þannig að þar sem ég gekk yfir Snorrabrautina gat ég fylgst með snoðuðum öryggisverði marsera með hangandi haus út úr kínverska sendiráðinu og draga kínverska fánann að húni á meðan hann spilaði þjóðsönginn á símanum sínum. Það þótti mér alltaf vera góðs viti fyrir daginn.
Þegar ég kom á skrifstofuna og var búinn að ná mér í kaffi setti ég svo heyrnartólin á mig og kveikti á tilteknum spilunarlista sem ég hafði soðið saman á Spotify. Alltaf þeim sama, þessum hérna. Ég nota reyndar ekki Spotify lengur en spilunarlistinn er þarna enn og læt ég hann fylgja hér að neðan.
