BJÖRN HALLDÓRSSON

Björn Halldórsson er fæddur árið 1983 og ólst upp í Mosfellsbæ. Hann er með BA-gráðu í enskum og amerískum bókmenntum frá University of East-Anglia og MFA-gráðu í skapandi skrifum frá Glasgow University, þar sem hann kenndi ritlist samhliða náminu.

Auk skáldskapar hefur Björn stundað þýðingar og skrifað pistla, gagnrýni og greinar fyrir ýmis blöð og útgáfur heima og erlendis. Hann hefur einnig tekið þátt í og stýrt viðburðum á ensku og íslensku, meðal annars fyrir Bókmenntahátíð í Reykjavík og PEN World Voices-bókmenntahátíðina í New York-borg, þar sem hann bjó á árunum 2016–2019.

Smásögur Björns hafa komið út í bókmenntatímaritum á Íslandi og í Bretlandi og hafa einnig birst í þýðingu á ensku, þýsku, ítölsku og hebresku. Fyrsta bókin hans, smásögusafnið Smáglæpir, vann til Nýræktarstyrks Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2016. Fyrsta skáldsaga hans, Stol, var gefin út hjá Forlaginu snemma árs 2021. Hún hlaut góða dóma og var tilnefnd til verðlaunanna Sparibollans. Önnur skáldsaga hans, Ókunnugt fólk, kom út hjá Forlaginu haustið 2026. Hann býr í Reykjavík.

bjornhalldorssonis@gmail.com

facebook.com/bjorn.halldorsson

bjornhalldors.substack.com