Ókunnugt fólk fær fjórar stjörnur í Morgunblaðinu í þessum skarpa og skemmtilega dómi Marteins Knaran.
“Ókunnugt fólk er vönduð og ígrunduð frásögn sem spyr stórra spurninga í gegnum hversdagslegt líf venjulegs fólks í íslenskum samtíma. Hún fjallar um það hvernig er að vera manneskja með sinn eigin innri heim, hugsanir, langanir, væntingar og sársauka, en þurfa um leið að tilheyra öðrum.”

