Bergur Ebbi um Ókunnugt fólk

Bergur Ebbi skrifaði fallega um Ókunnugt fólk á Facebook í gær. Dásamlegt að fá svona umsagnir, að upplifa að einhver hafi lesið bókina manns, meðtekið hana og séð alla þá vinnu sem fór í hana, og jafnframt séð eitthvað nýtt sem mann óraði ekki fyrir sjálfan. Leyfi mér að afrita umsögn Bergs og læt hana fylgja hér að neðan.

Þið kannist mörg við stinginn sem fylgir því að hita líkamann aftur upp eftir að hafa orðið alltof kalt. Til dæmis þegar maður byrjar að fá tilfinningu í tærnar í bílnum á leiðinni heim úr Bláfjöllum eftir að hafa orðið svo kalt að maður fann ekki fyrir tánum. Þetta eru verkirnir sem fylgja þiðnun. Ég fór að hugsa um svoleiðis verki til að reyna að ná utan um bókina Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Verkið er harmsaga fjölskyldu en þó að sagan sé full af harmi, þá er hún samt fyrst og fremst vonarsaga því hún fjallar um það þegar tilfinningar fara að láta á sér kræla eftir frost og stöðnun.

Það er snjallt form á þesssari bók. Sagan líður áfram frá mismunandi sjónarhornum, sem gengur algjörlega upp og fær mann til að fletta af áfergju. Persónurnar fá rými og maður heldur með þeim öllum, þær eiga sér allar einhverjar málsbætur mitt í öllum harminum. Ókunnugt fólk minnir mig soldið á sjónvarsþættina Six Feet Under sem hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er eitthvað við það hvernig Björn málar upp dauðann og hversdagsleikann, á sama strigann, og sinnir þeim báðum af sama aga og forvitni. Dauðinn er hversdagslegur og það er eiginlega mesti harmurinn.