Helgina sem leið bauð ég upp á heldur óvenjulegan upplestur, ásamt félögum mínum í hlaupahópnum Vali skokk. Við lögðum af stað í léttan flugvallarhring í blíðskaparveðri en á leiðinni voru tekin nokkur vel valin stopp þar sem ég las upp úr skáldsögunni Ókunnugu fólki, sem gerist að miklu leyti í Skerjafirði og nærumhverfi flugvallarins, á meðan Jói þjálfari leiddi mannskapinn í hreyfiteygjum til að halda öllum heitum. Það var góð mæting og eftir hringinn var ég með smá skottsölu á bókinni á planinu fyrir utan Valsheimilið. Þakka ég öllum sem mættu og voru til í að taka þátt í þessu uppátæki mínu sem ein vinkona mín lýsti sem „mögulega bestu miðaldra skemmtun“ sem hún hefði nokkurn tímann heyrt um.









