Bókadómur um Ókunnugt fólk í Víðsjá

Gauti Kristmanns skrifaði um Ókunnugt fólk fyrir Víðsjá um daginn. Ég læt skrif Gauta um bókina fylgja hér að neðan en einnig er hægt að hlusta á dóminn í Rúv-spilaranum.

Vel gerð og lesvæn skáldsaga um vansæla fjölskyldu

Gauti Kristmannsson skrifar:

Barnsmissir er líklega versta áfall sem nokkur manneskja þarf að þola og það breytir án efa afstöðu fólks til lífsins og dauðans. En það eru ekki aðeins foreldrar sem verða fyrir áfalli, systkini og fjölskyldan eru lostin þessum óvænta og óeðlilega harmi og sú staðreynd markar líkast til öll samskipti innan hennar til frambúðar. Fortíðin fær aðra merkingu eins og vel má lesa í þessari sögu um þetta efni; þetta er fjölskyldusaga um missi sem hangir eins og myllusteinn um háls allra sem í henni eru. Þarna erum við kannski minnt á skáldsögu Tolstojs um Önnu Kareninu sem hefst á þeirri staðhæfingu að allar óhamingjusamar fjölskyldur séu vansælar á sinn hátt á meðan hamingjusamar fjölskyldur séu eins, svo að orð skáldsins séu umorðuð aðeins.

Fjölskyldan í þessari sögu er sannarlega vansæl og ekki að ósekju. Drengurinn Danni batt enda á líf sitt áður en sagan hefst og hann er raunar einn af fimm sögumönnum frásagnarinnar, en þeir skiptast á að segja okkur hana, hver frá sínu sjónarhorni. Þessi faulkneríska aðferð er nokkuð vinsæl nú um stundir og ekkert að því, hún gefur okkur fjölbreytt sjónarhorn á atburði sem ein sögurödd í fyrstu persónu, eða alvitur í þriðju persónu gerir yfirleitt ekki. Aðferðin gefur lesendum líka færi á að kynnast aðalpersónunum sem einstaklingum að glíma við líf sitt og ögranir þess á sama tíma. Helsta ögrun þeirra í þessari sögu er vitaskuld missir Daníels. Fjölskyldufaðirinn, Elías, fyllir í tómarúmið í sálu sinni með klámfíkn, móðirin, Vilborg, berst við að halda fjölskyldunni saman með sameiginlegum máltíðum, dóttirin, Dagbjört, er á fullu í hjónabandi með útlendum manni og tveimur börnum þeirra og loks er það yngsti bróðirinn, Funi, sem er nýkominn úr meðferð og hefur eitthvað lítið við lífið að gera eins og er. Ósköp venjuleg fjölskylda að mörgu leyti þrátt fyrir þá bagga sem hvert og eitt þeirra geymir í sálarkytru sinni.

Þetta eru vitaskuld kunnuglegir baggar að sumu leyti, draumar sem ekki rættust, tilviljun ástarinnar, lentu hjónin bara óvart saman, nokkuð sem spyrja má um bæði pörin í sögunni, einelti og vinátta, foreldrar sem bregðast, eða voru þau bara að gera það sem þau gátu, ásakanir í eigin höfði sem í raun eru aðeins afsakanir vegna eigin vanmáttar. Við fáum forsmekkinn af þessu öllu í hugsunum sögupersónanna og það er vel unnið úr þeim flækjum sem þetta veldur í samskiptum persónanna, enda er þetta að miklu leyti samskiptasaga fjölskyldu sem er að takast á við eitthvað sem henni er um megn lengi vel og spennan sem það veldur heldur okkur lesendum við efnið.

Form bókarinnar er áhugavert eins og ýjað var að hér á undan, persónurnar fimm skiptast mjög reglulega á að segja frá á meðan sögunni vindur fram. Í fyrstu virðist ekki vera mikið um að vera, allt í föstum skorðum, þrátt fyrir erfiðar tilfinningar sem gerð er góð grein fyrir í fyrstu persónu; við fáum að vita hvað þeim finnst vera að hinum fjölskyldumeðlimunum og einnig hvað þeim finnst vera að þeim sjálfum. Þetta gerir þær þrívíðari og áhugaverðari fyrir vikið, sumir segðu trúverðugri. Þannig tekst höfundi að gera þær sympatískar og lesandanum stendur ekki á sama um örlög þeirra, samúðin eða samlíðanin er með þeim hvað sem orðum þeirra og gerðum líður.

Reyndar með þetta fasta form sögunnar dálítið á það sem áður var kallað á ensku „well made play“ og var þá átt við að það gengi algjörlega upp að byggja upp framvindu, stundum þannig sjónarhorn áhorfenda væri í raun hins alvitra sögumanns, eins og það er hér, lesendur fá allar upplýsingarnar frá sögupersónunum og þekkja þeirra innra líf á meðan þær sjálfar eru að reyna að álykta um það eftir orðum hinna og gerðum. Þær eru að einhverju leyti ókunnugt fólk eins og titillinn segir. Við þessa dramatísku íroníu bætist við að framvindan felur í sér nokkrar alldramatískar vendingar og þannig byggist upp spenna í sögu sem virðist í fyrstu vera um býsna „venjulegt fólk“.

Stíll sögunnar er dálítið í þeim anda. Þetta er lesvænn stíll, mikið í aðalsetningum og rennur vel, enda er frásögnin í munni þessa venjulega fólks sem ekki gefur færi á miklum, undirskipuðum og heimspekilega útpældum málsgreinum. En það er samt sem áður töluverð lífsspeki í persónunum öllum, út frá þeirra forsendum og takmörkunum og við lesendur verðum að taka hin stóru þemu sögunnar að okkur eftir eigin viðmiðum.

Við getum velt fyrir okkur gagnsleysi fortíðarinnar, eins og raunar sumar persónurnar gera, um leið og við viðurkennum mátt hennar yfir öllum okkar orðum og athöfnum. En samt má hún ekki fá að ráða öllu, hún verður að vera liðin og staðan í dag er ekkert annað en hún er, það er kannski svolítill boðskapur þessarar bókar, það er hægt að komast yfir áföllin og lifa, og hugsanlega má lesa það úr endinum, en hann verður hver lesandi að túlka fyrir sig.

Stóru þemun, dauðinn, og sér í lagi barnsmissir, eru meðhöndluð af mikilli nærfærni og virðingu af hálfu höfundar sem aftur tekst að fjalla um dauðann í nánum samböndum, ef svo má segja, án væmni og melódrama. Fyrsta skáldsaga hans, Stol, tók á þessum málum frá öðru sjónarhorni og gaf áleitna innsýn í hlutverk sorgarinnar, rétt eins og þessi saga gerir. Ókunnugt fólk segir okkur frá fjölskyldu þar sem einstaklingarnir hafa fjarlægst hver annan vegna djúprar sorgar sem enginn þeirra ræður við. Hver þeirra talar út af fyrir sig og tjáir þannig tilfinningar sínar og sorgir beint. Ég var í fyrstu dálítið efins um rödd dána sonarins og bróðurins, Danna, en þegar á leið sá ég að hún var í raun ómissandi og lykillinn í því að hnýta saman endana í þessari vel gerðu og lesvænu skáldsögu um vansæla fjölskyldu sem finnur samt sína eigin leið til að lifa við lífið eins og það gerðist.