Umsögn um Ókunnugt fólk í DV

Ásgeir Borgþór Sverrisson, rithöfundur og blaðamaður, skrifaði nýverið um Ókunnugt fólk í Bókaspjalli sínu undir fyrirsögninni „Brotnar fjölskyldur“, en í sama dálki skrifaði hann einnig um skáldsöguna Dagur í júní eftir Alex Schulman. Ég læt umsögn Ásgeirs um bókina fylgja hér að neðan.

Ókunnugt fólk er, að mig minnir, þriðja bók Björns Halldórssonar. Ég hef ekki lesið skáldsögu hans, Stol, en smásagnasafnið Smáglæpir lofaði mjög góðu. Sagan lýsir fjölskyldu í sárum vegna dauðsfalls frumburðar hjónanna og smám saman teiknast upp mynd af því hvernig sorgin og áfallið hafa tvístrað fjölskyldunni, í bland við óuppgerða fortíð og leyndarmál.

Sagan tekst á við ofurfirringu nútímans á snjallsímaöld en vekur manni von um að skáldsagan sé ennþá form og miðill sem skipti máli og geti hjálpað okkur til að glöggva okkur á samtímanum og takast á við hann. Sagan er sögð til skiptis frá sjónahóli helstu persóna, þar á meðal er látni sonurinn. Hann er raunar eina persóna bókarinnar sem mér fannst ekki skýr og ég hreinlega veit ekki hvort það er nokkur galli. Kannski er við hæfi að hann sé lesandanum ekki jafn áþreifanlegur og ættingjar hans, en hinar persónurnar eru ljóslifandi og dregnar upp skýrum dráttum. Þar þykir mér eiginkonan og móðirin Vilborg eftirminnilegust, stór og breyskur karakter, uppfull af umhyggju og stjórnsemi sem fara úr böndunum. 

Titillinn „Ókunnugt fólk“ er margræður en hlýtur að vekja upp þá tilhugsun að nákomnar manneskjur þekkist ekki alltaf vel þegar að er gáð. Að við séum öll ókunnugt fólk. 

Þó sagan sé efnismikil með öllum sínum persónum og hliðarsögum þá er hún ekki tiltakanlega löng. Kaflarnir eru stuttir og frásögnin grípandi. Þetta er þéttur pakki. 

Þessa bækur eiga tvennt sameiginlegt, annað er að höfundarnir skrifa um þungbær söguefni sem snerta fjölskyldur og uppvöxt, hitt er að þeir hafa báðir grípandi frásagnartækni og hæfileika til að halda athygli lesandans og fá hann til að fletta áfram. Ég held að á þessum tímum offramboðs af auðmeltri afþreyingu sé mikilvægt að skáldsögur séu aðgengilegar og grípandi. Það á við um þessar tvær sögur.