Ókunnugt fólk var tekin fyrir af Sjöfn Asare í Lestrarklefanum um daginn og fékk þar glimrandi fínan dóm. Þar segir Sjöfn m.a: „Það sem er kannski mesta snilldin við bókina er hversu djúpt höfundur lætur mig finna til samkenndar með fólki sem ég kann ekkert sérstaklega vel við.“ Gaman hvernig fólk tengir á ólíkan máta við grey fjölskylduna í Skerjafirðinum.
Myndi afrita dóminn allan og birta hér að neðan en hann virðist hafa horfið í nýlegri árás á hýsingarfyrirtækið 1984. Læt þó hlekk fylgja hér í von og óvon um að dómurinn skili sér einn daginn aftur og sendi stelpunum í Lestrarklefanum samúðar- og baráttukveðjur.

