Ókunnugt fólk í Bara bækur

Kíkti til Jóa í Bara bækur í vikunni. Ræddum um eitt og annað og hafði hann ýmislegt til málanna að leggja sem mig hefði ekki grunað, kannski ekki síst tengingar við Sartre og pælingar um eftirlitssamfélagið. Gaman að því. Hægt er að hlusta á viðtalið í RÚV-Spilaranum.

Bókin var einnig lögð fyrir gagnrýnendur Kiljunnar um daginn og voru Kolla og Ingibjörg temmilega ánægðar með hana.