ÓKUNNUGT FÓLK KEMUR ÚT Í DAG

Í dag gefur Forlagið út mína þriðju bók, skáldsöguna Ókunnugt fólk. Sumar bækur rannsakar maður í þaula og skrifar ekki staf af fyrr en maður veit nokkurn veginn hvað maður er að gera. Aðrar bækur byrjar maður strax að skrifa með lítið annað í kollinum en stórar, óljósar hugmyndir í trausti þess að á meðan á skrifunum stendur muni maður læra nógu mikið til að verða einn daginn fær um að klára bókina. Ókunnugt fólk var þannig bók, bók sem ég þurfti að skrifa aftur og aftur og aftur í þeirri von að einn daginn yrði hún tilbúin til útgáfu. Sá dagur er í dag, en til að hann gæti komið þurfti ég að biðja um og þiggja hjálp frá ansi mörgum aðilum.

Takk, þið öll sem lásuð handritið fyrir mig á ýmsum stigum: Fríða Ísberg, Harpa Rún Kristjánsdóttir, María Elísabet Bragadóttir, Pedro Gunnlaugur Garcia, Rósa Ómarsdóttir, Sigurjón Bergþór Daðason.

Takk, Davíðshús, listamannaíbúð á vegum Akureyrarbæjar, þar sem fyrstu og síðustu kaflar fyrsta uppkasts þessarar bókar voru skrifaðir í tveimur lotum, veturinn 2021 og haustið 2022.

Takk, ReykjavíkurAkademían og Gröndalshús, þar sem ég hafði aðsetur á meðan ég vann í handritinu.

Takk, Sigríður Rögnvaldsdóttir, ritstjóri minn hjá Forlaginu, sem sendi mig fjórum sinnum heim með það sem ég hélt að væri handrit sem var tilbúið til útgáfu.

Takk, Hólmfríður Matthíasdóttir, útgáfustjóri Forlagsins, sem var alltaf til í að lesa aftur.

Takk, Emilía Ragnarsdóttir, fyrir þessa fallegu kápu og fyrir þolinmæðina.

Takk, Silja Aðalsteinsdóttir, fyrir prófarkalestur og uppörvunarorð.

Takk, samnemendur mínir í ritlistardeild Háskólans í Glasgow, sem sáu fyrstu drög þessa handrits fyrir löngu, löngu, löngu síðan.

Takk, samstarfsfólk mitt í Stofnun Árna Magnússonar og í Bóksölu stúdenta. Við íslenskir höfundar þurfum flestir að redda okkur einhvers konar hlutastarfi með skrifunum og ég tel mig heppinn að hafa fundið slíkt gigg með svona skemmtilegu og gefandi fólki.

Takk, mamma og Vala systir, sem studdu mig alla leið og gættu þess alltaf að spyrja ekki of mikið út í um hvað bókin væri.

Takk, Raggi frændi, sem las yfir nokkra kafla og miðlaði til mín reynslu sinni af hljómsveitarbrölti og svartmálmsbrasi.

Takk, Elín Björk, eiginkona mín, sem á svo ótrúlega mikið í þessari bók og hefur þurft að lifa með henni allt of lengi. Guð má vita hvenær eða hvort þessi bók hefði komið út án þín.

Vinnan við bókina var styrkt með greiðslum úr Launasjóði rithöfunda og með höfundastyrk frá Rithöfundasambandi Íslands.

Takk.